banner
   sun 10. desember 2017 12:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu stoðsendinguna frá Jóhanni Berg í gær
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp enn eitt markið þegar Burnley lagði Watford í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Það var aðeins eitt mark skorað og það gerði Scott Arfield eftir undirbúning frá Jóhanni Berg.

Jóhann Berg var með boltann úti hægra megin en hann færði hann yfir til vinstri beint á Arfield sem skaut að marki.

Jóhann Berg hefur verið ansi duglegur að leggja upp en hann á núna fimm stoðsendingar með sínu nafni. Aðeins fjórir leikmenn hafa lagt upp fleiri mörk en Jói Berg á tímabilinu, en það eru Kevin de Bruyne, David Silva og Leroy Sane, leikmenn Manchester City, og Aaron Ramsey, miðjumaður Arsenal.

Burnley hefur komið liða mest á óvart er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 28 stig.

Smelltu hér til að sjá stoðsendingu Jóhanns Bergs frá því í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner