Real Oviedo 1 - 0 Osasuna
1-0 Diego Jóhannesson ('10)
1-0 Diego Jóhannesson ('10)
Diego Jóhannesson gerði eina markið er Real Oviedo lagði Osasuna að velli í spænsku B-deildinni.
Heimamenn í Oviedo byrjuðu leikinn af krafti og brenndi David Rocha af vítaspyrnu snemma leiks. Það kom ekki að sök því Diego skoraði svo á tíundu mínútu.
Heimamönnum tókst að drepa niður leikinn í kjölfarið af markinu og fóru samtals tvö skot á markið í öllum leiknum. Gestirnir náðu ekki að hitta rammann.
Heimamenn tóku svo víkingaklappið að leikslokum eins og er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Haka islandesa para celebrar un triunfo muy trabajado. #RealOviedo pic.twitter.com/e1iKkMJcga
— Miguel López Serrano (@Mlserrano) December 10, 2017
Athugasemdir