Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. desember 2017 21:39
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Suarez og Messi sáu um Villarreal
Mynd: Getty Images
Villarreal 0 - 2 Barcelona
0-1 Luis Suarez ('72)
0-2 Lionel Messi ('83)
Rautt spjald: Dani Raba ('60)

Luis Suarez og Lionel Messi sáu um að afgreiða tíu leikmenn Villarreal í lokaleik dagsins í spænska boltanum.

Bæði lið fengu góð færi til að skora en verkefni heimamanna varð aðeins of erfitt þegar þeir misstu miðjumanninn Dani Raba af velli fyrir stórhættulega tæklingu á Sergio Busquets.

Suarez kom Börsungum yfir eftir frábæra sókn og innsiglaði Messi sigurinn eftir lélega sendingu úr vörn heimamanna.

Börsungar eru með fimm stiga forystu á toppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner