Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. janúar 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
AC Milan semur aftur við 40 ára gamlan markvörð
Marco Storari.
Marco Storari.
Mynd: Getty Images
AC Milan hefur samið við reynsluboltann Marco Storari út þetta tímabil, en hann kemur til liðsins frá Cagliari. Það sem vekur athygli í þessu er að Storari er kominn á fimmtugsaldurinn.

Storari er markvörður, en Milan hefur sent hinn brasilíska Gabriel í hina áttina. Gabriel, sem gerði nýverið nýjan samning við Milan, klárar tímabilið með Cagliari.

Hinn fertugi Storari lék áður með Milan frá janúar 2007 til júní 2010, en honum tókst aðeins að leika 13 leiki á tíma sínum þá.

Storari kemur til með að vera til vara fyrir hinn 17 ára gamla Gianluigi Donnarumma, en sá hefur slegið í gegn á San Siro.
Athugasemdir
banner
banner
banner