Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. janúar 2017 18:34
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Southampton og Liverpool: Coutinho á bekknum
Coutinho byrjar á bekknum.
Coutinho byrjar á bekknum.
Mynd: Getty Images
Klukkan 19:45 hefst fyrri undanúrslitaleikur Southampton og Liverpool í enska deildabikarnum. Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport.

Dýrlingarnir verða án Jose Fonte sem hefur farið fram á sölu og vill knattspyrnustjórinn Claude Puel ekki nota varnarmanninn meðan glugginn er opinn.

Hjá Liverpool snýr Philippe Coutinho aftur eftir meiðsli en byrjar á bekknum. Fyrirliðinn Jordan Henderson verður ekki með vegna meiðsla á hæl og Sadio Mane er í undirbúningi fyrir Afríkukeppnina með Senegal.

Fylgst er með gangi mála í úrslitaþjónustu á forsíðu.

Byrjunarlið Southampton: Forster, Cedric, Yoshida, Van Dijk, Bertrand, Clasie, Davis, Romeu, Redmond, Tadic, Rodriguez.

Byrjunarlið Liverpool: Karius, Clyne, Lovren, Klavan, Milner, Lucas, Can, Wijnaldum, Lallana, Firmino, Sturridge.
(Varamenn: Mignolet, Gomez, Moreno, Stewart, Coutinho, Woodburn, Origi)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner