Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. janúar 2017 15:25
Magnús Már Einarsson
Íslenska landsliðið tilnefnt til Laureus verðlaunanna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur verið tilnefnt til hinna virtu Laureus verðlauna en þau hafa verið afhent árlega frá árinu 2000. Liðið er tilnefnt í flokknum „Framfarir ársins“ fyrir afrek sitt á EM í Frakklandi síðasta sumar.

Laureus verðlaunin eru með virtustu viðurkenningum í íþróttaheiminum og hafa margar stjörnur úr hinum ýmsu íþróttagreinum verið tilnefndar í gegnum árin.

Stofnað var til Laureus verðlaunanna árið 2000 og á fyrstu verðlaunahátíðinni sem haldin var í Mónakó sagði einn af stofnendum þeirra, Nelson Mandela: „Íþróttir hafa þann mátt að geta breytt heiminum. Íþróttir veita innblástur. Þær hafa mátt til að sameina fólk á þann hátt sem fátt annað í veröldinni getur megnað. Íþróttir geta vakið vonir þar sem áður ríkti vonleysi.“

Laureus var ekki eingöngu stofnað til að veita íþróttafólki viðurkenningar. Eitt aðalmarkmið Laureus samtakanna er að standa fyrir góðgerðarverkefnum þar sem stutt er við íþróttaiðkun barna út um allan heim.

Tvö önnur lið og fjórir einstaklingar eru tilnefnd í sama flokki og karlalandsliðið okkar.

Almaz AYANA (Eþíópía)
Fiji Men's Rugby Seven liðið
Íslenska karlalandsliðið
Leicester City FC (Bretland)
Nico ROSBERG (Þýskaland)
Wayde VAN NIERKERK (Suður Afríka)

Verðlaunin verða veitt í Mónakó 14. apríl næstkomandi og hefur fulltrúum landsliðsins verið boðið að vera viðstaddir verðlaunaafhendinguna.

Ítarlegri upplýsingar um Laureus verðlaunin er að finna á heimasíðu samtakanna og þar er einnig að finna upplýsingar um tilnefningar í öðrum flokkum og yfirlit yfir verðlaunahafa allt frá árinu 2000.

Cristiano Ronaldo er eini fótboltamaðurinn sem kemur til greina í vali á íþróttamanni ársins hjá Laureus en í liði ársins koma Real Madrid, Portúgal og Brasilía til greina.
Athugasemdir
banner
banner