Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. janúar 2017 22:22
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Klopp: Það er aðeins hálfleikur
Klopp var ekki ánægður eftir leik
Klopp var ekki ánægður eftir leik
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool var ekki sáttur með leik sinna manna í 1-0 tapi gegn Southampton.

Klopp var ekki ánægður með viðbrögð sinna leikmanna þegar Nathan Redmond skoraði eina mark leiksins.

„Tímasetningarnar voru ekki góðar og við vorum ekki nógu þéttir. Allt breyttist eftir markið og ég var ekki ánægður með hvernig við brugðumst við" sagði Klopp.

Liverpool geta þakkað markverði sínum, Loris Karius fyrir að bjarga liðinu á ögurstundu og var Klopp ánægður með hann.

„Þetta var verðskuldaður sigur hjá Southampton en það er aðeins hálfleikur. Seinni leikurinn verður allt annar leikur. Enginn ætti að halda að þessi viðureign sé lokið" sagði Klopp að lokum.

Seinni leikurinn fer fram þann 25. janúar á Anfield.


Athugasemdir
banner
banner
banner