Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. janúar 2017 11:53
Elvar Geir Magnússon
Markvörður Liverpool byrjaður með samfélagsmiðlastjörnu
Pamela og Karius.
Pamela og Karius.
Mynd: Getty Images
Loris Karius, markvörður Liverpool, er kominn með nýja kærustu. Hún heitir Pamela Reif og er 20 ára samfélagsmiðlastjarna í Þýskalandi.

Samkvæmt fréttum hefur hinn 23 ára Karius verið að hitta Reif síðan í nóvember en hún er með yfir 2,7 milljón fylgjendur á samfélagsmiðlum.

Hún hefur komið með ráð í líkamsrækt og heilsu á samfélagsmiðlum síðan hún var 15 ára gömul og hefur frægð hennar vaxið jafnt og þétt.

Í dag eru fleiri sem skoða myndir og myndbönd hennar en hjá vinsælum fótboltamönnum eins og Thoma Müller hjá Bayern München.

„Ég fæ gríðarleg viðbrögð. Fólk hefur sagt mér að það hafi byrjað að lifa heilbrigðum lífsstíl út af mér og gaurar segja mér að kærustur þeirra hafi byrjað að æfa því þær eru svo hrifnar af mér," sagði Reif í viðtali nýlega.

Karius var keyptur frá Mainz í sumar og átti að vera aðalmarkvörður Liverpool. Hann hefur hinsvegar misst sæti sitt og er geymdur á bekknum í helstu leikjum liðsins.

Goodnight ♡

A photo posted by Pamela Rf (@pamela_rf) on


Athugasemdir
banner
banner