Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, notaði áhugaverða aðferð til að koma skilaboðum til sinna manna í síðari hálfleik gegn Southampton í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld.
Klopp kallaði framherjann Daniel Sturridge út að hliðarlínu og lét hann fá blað í hendurnar með upplýsingum um taktískar breytingar.
Sturridge fór með blaðið inn á og sýndi meðal annars Dejan Lovren og Emre Can það.
Breytingarnar skiluðu þó ekki árangri en Liverpool tapaði leiknum 1-0. Liðin mætast aftur í síðari leiknum á Anfield eftir tvær vikur.

Hér að neðan má sjá Sturridge fara með blaðið inn á.
Athugasemdir