Fótboltinn er þannig að sumir leikmenn fá alla athyglina á meðan aðrir þurfa að vera í skugganum. Íþróttafréttamenn Daily Mirror settu saman úrvalslið vanmetinna leikmanna í ensku úrvalsdeildinni og má sjá val þeirra hér að neðan.
Látið endilega vita í ummælakerfinu ef þið teljið að aðrir vanmetnir leikmenn eigi frekar heima í þessu liði!
Látið endilega vita í ummælakerfinu ef þið teljið að aðrir vanmetnir leikmenn eigi frekar heima í þessu liði!
Varnarmaður: Steve Cook (Bournemouth) - Með magnaða tölfræði fyrir Bournemouth sem siglir lygnan sjó um miðja deild.
Varnarmaður: Winston Reid (West Ham) - Besti leikmaður Hamranna í dag og er í miklum metum hjá eigin stuðningsmönnum.
Varnarmaður: Ashley Williams (Everton) - Það þarf bara að sjá hvað varnarleikur Swansea hefur hrunið eftir að hann fór.
Miðjumaður: Matt Phillips (West Brom) - Stór ástæða fyrir velgengni West Brom. Hefur lagt upp fjölda marka.
Sóknarleikmaður: Wilfried Zaha (Crystal Palace) - Umdeildur er hann en enginn getur neitað því að hann er erfiður viðureignar fyrir varnarmenn.
Sóknarleikmaður: Heung-min Son (Tottenham) - Lætur lítið fyrir sér fara utan vallar en skilar sínu svo sannarlega innan hans.
Athugasemdir