Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 11. janúar 2018 12:40
Elvar Geir Magnússon
Anton Ari leikur sinn fyrsta leik í treyju Íslands
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Ari Einarsson, markvörður Vals, er kominn inn sem varamaður í landsleik Indónesíu og Íslands sem nú stendur yfir. Anton Ari kom inn í hálfleik.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.

Anton var valinn í úrvalslið Pepsi-deildarinnar síðasta sumar en hann var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Valsmanna.

Þessi 23 ára leikmaður er að spila sinn fyrsta landsleik en hann hefur aldrei leikið í búningi Íslands og á enga yngri landsleiki að baki.

Ísland hefur haft mikla yfirburði í leiknum og er 1-0 yfir eftir að Andri Rúnar Bjarnason skoraði. Eins og Anton Ari er Andri að leika sinn fyrsta leik í íslensku landsliðstreyjunni.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum


Athugasemdir
banner
banner