Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 11. janúar 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Fimmtugur framherji gerir nýjan samning
Mynd: Getty Images
Japanski framherjinn Kazuyoshi Miura hefur skrifað undir nýjan samning við Yokohama FC í B-deildinni þar í landi.

Það væri kannski ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að Miura verður 51 árs gamall í næsta mánuði.

Miura er að fara að leika sitt 33. tímabil í atvinnumennsku!

„Ég mun alltaf leika með hjartanu og halda áfram að vaxa sem leikmaður," sagði Miura eftir undirskrift.

Miura hefur meðal annars spilað með Santos í Brasílíu, Genoa á Ítalíu og Dinamo Zagreb í Króatíu á ferli sínum en hann á 89 landsleiki að baki.
Athugasemdir
banner
banner
banner