Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. janúar 2018 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Firmino: Heiður að spila með töframanni eins og þér
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino hefur birt hjartnæma kveðju til Philippe Coutinho á Instagram síðu sinni.

Coutinho yfirgaf Liverpool til að semja við Barcelona en hann var keyptur til Katalóníustórveldisins fyrir um 145 milljónir punda. Það gerir hann að næst dýrasta fótboltamanni sögunnar á þessu augnabliki, á eftir Neymar.

Firmino og Coutinho eru miklir vinir en Firmino segir að Liverpool verði ekki eins án Coutinho.

„Liverpool er ekki eins án þín," skrifar Firmino á Instagram við mynd af sér og Coutinho.

„Guð mun alltaf vernda þig og fjölskyldu þína. Það var heiður að spila með töframanni eins og þér."


Athugasemdir
banner
banner
banner