Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 11. janúar 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íris Sverrisdóttir samdi að nýju við Selfoss
Íris og Svava Svavarsdóttir, stjórnarkona, við undirritun samningsins.
Íris og Svava Svavarsdóttir, stjórnarkona, við undirritun samningsins.
Mynd: Selfoss
Miðjumaðurinn Íris Sverrisdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Selfoss fyrir komandi keppnistímabil í Pepsi-deildinni. Þetta segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Íris, sem er 24 ára gömul, er reynslumikill leikmaður en hún hefur leikið yfir 120 leiki með meistaraflokki Selfoss allt frá því að hann var endurvakinn árið 2009.

Hún var öflug í 1. deildinni á síðasta keppnistímabili, þegar liðið endurheimti sæti sitt í deild þeirra bestu.

Á lokahófi knattspyrnudeildarinnar fékk hún Guðjónsbikarinn fyrir mikilvægt framlag til félagsins og jákvæðni innan vallar sem utan.

„Íris er mikilvægur hlekkur í okkar liði, búin að vera öll þessi ár í meistaraflokknum. Hún er mikill dugnaðarforkur og er tilbúin að leggja mikið á sig þannig að hún er góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn. Það er frábært að hún ætli að taka slaginn áfram enda er hún mikilvæg fyrir okkur bæði innan og utan vallar," segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner