Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. janúar 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool vill framlengja við Firmino - Samningur út ferilinn?
Mynd: Getty Images
Liverpool vill reyna að framlengja samning sinn við framherjann Roberto Firmino en enskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag.

Firmino er samningsbundinn til sumarsins 2020 en Liverpool vill gera lengri samning við hann að sögn Sky.

Telegraph gengur skrefi lengra og segir að Liverpool ætli að bjóða Firmino samning sem gildir út ferilinn.

Firmino hefur skorað 30 mörk í 76 leikjum síðan hann kom til Liverpool frá Hoffenheim á 21,3 milljónir punda sumarið 2015.

Þessi 26 ára gamli Brasilíumaður lýsti því sjálfur yfir í síðustu viku að hann vilji vera hjá félaginu í mörg ár til viðbótar.
Athugasemdir
banner
banner