Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. janúar 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Mina til Barcelona (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur keypt miðvörðinn Yerri Mina frá Palmeiras í Brasilíu á 11,8 milljónir evra (10,5 milljónir punda).

Mina er 23 ára gamall en hann hefur skrifað undir samning við félagið til ársins 2023.

Mina er 195 cm á hæð og Barcelona telur að hann geti styrkt varnarleikinn hjá félaginu næstu árin.

Á ferli sínum hjá Palmeiras skoraði Mina átta mörk í 33 leikjum en hann er öflugur í föstum leikatriðum.

Mina hefur einnig skorað þrjú mörk í níu leikjum með kolumbíska landsliðinu á ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner