Liverpool, Arsenal, Chelsea og Tottenham eru öll að fylgjast með varnarmanninum Ben Wilmot hjá Stevenage. ESPN segir frá þessu í dag.
Fulltrúar frá öllum félögum fylgdust með Wilmot í markalausu jafntefli Stevenage og Reading í enska bikarnum um helgina.
Wilmot er 18 ára gamall en hann leikur með Stevenage í ensku D-deildinni.
Fulltrúar frá öllum félögum fylgdust með Wilmot í markalausu jafntefli Stevenage og Reading í enska bikarnum um helgina.
Wilmot er 18 ára gamall en hann leikur með Stevenage í ensku D-deildinni.
Brighton & Hove Albion hefur einnig sýnt Wilmot áhuga í vetur og reynt að kaupa hann en án árangurs.
Stóru liðin gætu nú reynt að tryggja sér hann fyrir framtíðina.
Athugasemdir