Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 11. janúar 2018 16:33
Elvar Geir Magnússon
Umboðsmaður Sanchez farinn að fylgja Man Utd á Twitter
Alexis Sanchez á Old Trafford?
Alexis Sanchez á Old Trafford?
Mynd: Getty Images
Manchester United varpaði sprengju í félagaskiptaglugganum í dag með því að gera 25 milljóna punda tilboð í Alexis Sanchez, leikmann Arsenal.

Sanchez verður samningslaus eftir tímabilið og vill fara. Manchester City hefur verið talið leiða kapphlaupið um Sílemanninn en nú hafa grannarnir blandað sér í baráttuna.

Mikla athygli hefur vakið að umboðsmaður leikmannsins, Fernando Felicevich, er skyndilega byrjaður að fylgja Manchester United á Twitter. Er það einhver vísbending?

Margir stuðningsmenn Manchester United eru mjög spenntir eftir fréttir dagsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner