Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 11. janúar 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Viktor Helgi á leið í ÍA
Viktor í leik í Bose mótinu fyrir áramót.
Viktor í leik í Bose mótinu fyrir áramót.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Helgi Benediktsson, miðjumaður FH, er á leið í ÍA samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Félögin hafa náð samkomulagi um félagaskiptin og Viktor Helgi mun í kjölfarið skrifa undir hjá ÍA.

Viktor Helgi er 19 ára gamall en hann skoraði þrjú mörk í nítján leikjum á láni hjá HK á síðasta tímabili.

HK endaði í 4. sæti í Inkasso-deildinni í fyrra en Jóhannes Karl Guðjónsson var þá þjálfari liðsins.

Jóhannes Karl tók við ÍA í haust og hann hefur nú ákveðið að fá Viktor með í hópinn hjá ÍA.

Skagamenn féllu úr Pepsi-deildinni í haust og stefna á að endurheimta sæti sitt þar í sumar.
Athugasemdir
banner
banner