Fílbeinsstrendingurinn Emmanuel Eboue æfir þessa dagana með enska úrvalsdeildarliðinu Sunderland.
Eboue hefur verið án félags síðan samningur hans við Galatasaray rann út í lok síðasta tímabils en þessi 32 ára gamli hægri bakvörður gæti verið að snúa aftur í enska boltann.
Eboue lék 214 leiki fyrir Arsenal á árunum 2004-2011 en þá færði hann sig til Tyrklands.
Sunderland er með laust pláss fyrir tvo leikmenn á leikmannalista sínum og gætu samið við Eboue þó félagaskiptaglugginn sé lokaður því Eboue er án félags.
Liðið er í bullandi fallbaráttu í næstneðsta sæti deildarinnar, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir