Marian Polak mun leika með Njarðvík í 2.deildinni næsta sumar.
Polak þessi er 33 ára gamall Slóvaki og segir á vef Víkurfrétta að hann hafi búið í Reykjanesbæ um hríð.
Hann hefur æft með Njarðvík undanfarnar vikur og í kjölfarið ákvað félagið að semja við kappann.
Njarðvík var í bullandi fallbaráttu stærstan hluta síðasta sumars en náði að bjarga sér fyrir horn og verða því meðal keppenda í 2.deildinni næsta sumar.
Athugasemdir