Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 11. febrúar 2016 10:18
Magnús Már Einarsson
Níu ára vann mark mánaðarins hjá Everton
Roberto Martinez afhendir Shaw verðlaunin.
Roberto Martinez afhendir Shaw verðlaunin.
Mynd: Everton
Hinn níu ára gamli George Shaw hefur verið verðlaunaður fyrir að skora mark janúar mánaðar hjá Everton.

Shaw er mjög harður stuðningsmaður Everton en hann fæddist með heilalömun.

Draumur hans var að skora mark á Goodison Park og sá draumur rættist fyrir leik hjá Everton í janúar.

Shaw skoraði þá fyrir framan áhorfendur í Gwlays Street End stúkunni við mikinn fögunð. Markið var síðan kosið mark mánaðarins af stuðningsmönnum Everton.

„Takk allir sem ákváðu að kjósa mig," sagði Shaw eftir að hann tók við verðlaununum en mark hans má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner