banner
   fim 11. febrúar 2016 19:36
Ívan Guðjón Baldursson
Payet skrifar undir samning - Launahæstur í sögu West Ham
Mynd: Getty Images
Dimitri Payet er búinn að skrifa undir fimm og hálfs árs samning við West Ham samkvæmt Daily Mail.

Vikulaun Payet geta farið í allt að 125 þúsund pund, en 68 þúsund pund eru grunnlaunin hans. Ofan á grunnlaunin bætast ýmsir bónusar, en 25 þúsund pund fær hann aukalega fyrir hvern leik sem hann tekur þátt í.

Auk þess fær leikmaðurinn eina milljón punda fyrir að skrifa undir samninginn.

Þetta gerir Payet að launahæsta leikmanni í sögu Hamranna, en kínverska liðið Shanghai Shenhua er reiðubúið til þess að greiða honum 135 þúsund pund í vikulaun.

Fleiri enskir miðlar á borð við Sky Sports og BBC eru byrjaðir að greina frá nýja samningnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner