Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. febrúar 2018 13:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Newcastle og Man Utd: Pogba snýr aftur
Pogba er mættur aftur í byrjunarlið Man Utd.
Pogba er mættur aftur í byrjunarlið Man Utd.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba snýr aftur í byrjunarlið Manchester United eftir að hafa verið á varamannabekknum gegn Huddersfield um síðustu helgi. United er að fara að spila gegn Newcastle.

Jose Mourinho kom á óvart með því að bekkja Pogba í síðasta leik en hann setur hann aftur inn í liðið í dag.

„Paul er frábær leikmaður. Það liggur enginn vafi á að hann er einn hæfileikaríkasti miðjumaður sem til er í þessum heimi. Að sitja á bekknum í einn dag er enginn heimsendir fyrir hann," sagði Mourinho eftir leikinn gegn Huddersfield um síðustu helgi en hann hélt því staðfastlega fram að hann hefði ekki verið að refsa Pogba.

Annars snúa Phil Jones, Ashley Young og Anthony Martial líka aftur í byrjunarlið Man Utd.

Það eru tvær breytingar á byrjunarliði Newcastle. Martin Dubravka byrjar í markinu og Florian Lejeune er í hjarta varnarinnar. Hér að neðan eru bæði byjrunarliðin.

Leikurinn hefst 14:15.

Byrjunarlið Newcastle: Dubravka, Dummett, Lascelles, Lejeune, Yedlin, Shelvey, Kenedy, Diame, Perez, Ritchie, Gayle.
(Varamenn: Darlow, Murphy, Hayden, Manquillo, Joselu, Merino, Atsu)

Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Valencia, Jones, Smalling, Young, Matic, Pogba, Lingard, Martial, Sanchez, Lukaku.
(Varamenn: Romero, Lindelof, Rojo, Mata, Carrick, Shaw, McTominay)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner