Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 11. febrúar 2018 18:47
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Southampton og Liverpool: Salah og Firmino bestir
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah og Roberto Firmino afgreiddu Southampton í fyrri hálfleik er Liverpool heimsótti Southampton á St. Mary's leikvanginn í dag.

Firmino og Salah lögðu mörkin upp fyrir hvorn annan og virtust heimamenn búnir að gefast upp þegar leikmenn gengu á völlinn eftir leikhléð.

Báðir fengu þeir færi til að bæta þriðja marki leiksins við en inn vildi boltinn ekki og er Liverpool í þriðja sæti, tveimur stigum frá Manchester United.

Mario Lemina og James Ward-Prowse voru lélegastir á vellinum á meðan Salah og Firmino voru bestir.

Southampton:
McCarthy - 5
Cedric - 6
Stephens - 5
Hoedt - 5
Bertrand - 6
Romeu - 5
Lemina - 4
Ward-Prowse - 4
Hojbjerg - 5
Tadic - 5
Carrillo - 5
(Long 5, Davis 5, Boufal 5)

Liverpool:
Karius - 6
Arnold - 7
Matip - 6
Van Dijk - 7
Robertson - 6
Chamberlain - 6
Can - 6
Wijnaldum - 6
Salah - 8
Firmino - 8
Mane - 6
(Milner 6, Lallana 6)
Athugasemdir
banner
banner