Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 11. febrúar 2018 23:34
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Þið vitið hver tapaði skallaeinvíginu
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho vildi ekki tjá sig opinberlega um raunverulega ástæðu þess að hann tók Paul Pogba útaf í óvæntu tapi gegn Newcastle.

Pogba var tekinn útaf ásamt Jesse Lingard rúmri mínútu eftir eina mark leiksins.

Boltinn barst hátt inn á teig Manchester United úr aukaspyrnu og fór Pogba ekki upp í skallaeinvígið sem leiddi til marksins.

„Hann er ekki meiddur. Þetta var taktísk skipting gegn varnarsinnuðu liði," sagði Mourinho, sem setti Michael Carrick inn í stað Pogba.

„Við æfum svæðisvörn á æfingum og leikmenn þekkja hlutverk sín fram og til baka.

„Ég er ekki búinn að sjá markið endursýnt þannig þið vitið meira en ég um þetta mál. Þið vitið hver tapaði skallaeinvíginu.

„Mér finnst ekki gaman að vera settur í aðstæður þar sem ég þarf að gagnrýna eigin leikmann í fjölmiðlum. Þið megið sjá um það sjálfir."

Athugasemdir
banner
banner
banner