Paul Pogba er ekki að eiga sína bestu daga í búningi Manchester United. Hann var tekinn af velli gegn Tottenham á dögunum, hann byrjaði á bekknum gegn Huddersfield um síðustu helgi og var aftur tekinn af velli í dag þegar United tapaði gegn Newcastle.
Jose Mourinho segir að engin meiðsli séu að angra Pogba, hann hafi verið tekinn út af til að einfalda spilið í gegnum miðjuna.
„Það eru engin vandamál hjá honum," sagði Mourinho aðspurður út í hvort Pogba væri meiddur.
„Ég vildi fá betra spil í gegnum miðjuna gegn liði sem var að verjast með marga menn fyrir aftan boltann. Ég vildi fá Michael Carrick inn þar sem hann gerir hlutina einfalda."

Þegar Pogba var kominn út af beindust myndavélarnar að honum. Svipbrigði hans á varamannabekknum vöktu athygli.
Mynd af honum á bekknum er hér að neðan.
For just £2 a month you can help give Pogba his dabbing form back. Text 90MILL to 89089 pic.twitter.com/ZN0ap2y95E
— :/ (@Willzzzyy) February 11, 2018
Athugasemdir