Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 11. febrúar 2018 17:52
Ívan Guðjón Baldursson
Salah jafnaði úrvalsdeildarmet Fowler
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah skoraði og lagði upp fyrir Liverpool gegn Southampton í enska boltanum í dag.

Salah skoraði með vinstri eftir laglega hælsendingu frá Roberto Firmino og var þetta hans nítjánda deildarmark með vinstri á tímabilinu.

Salah jafnaði þar með úrvalsdeildarmet Robbie Fowler sem skoraði 19 mörk með vinstri tímabilið 1994-95.

Frammistaða Salah á tímabilinu hefur verið óaðfinnanleg og er hann í fyrsta sæti yfir mörk skoruð og lögð upp í deildinni, enda búinn að eiga sjö stoðsendingar.

Liverpool er 2-0 yfir gegn Southampton þegar 25 mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma. Sigur fleytir Liverpool í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Manchester United.
Athugasemdir
banner