Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. febrúar 2018 19:05
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Aron byrjaði í sigri gegn Wolfsburg
Mynd: Getty Images
Aron Jóhannsson lék fyrstu 65 mínúturnar á hægri kanti Werder Bremen er liðið hafði betur gegn Wolfsburg í síðasta leik helgarinnar í þýska boltanum.

Heimamenn í Bremen voru mikið sterkari í fyrri hálfleik og fóru inn í leikhléð með tveggja marka forystu.

Gestirnir frá Wolfsburg komu sterkir inn í síðari hálfleik og minnkuðu muninn snemma þegar Paul Verhaegh fylgdi eigin vítaspyrnu eftir með marki.

Wolfsburg var óheppið að jafna ekki, en Florian Kainz tryggði sigur heimamanna með sínu öðru marki á 72. mínútu.

Aron og félagar komust upp úr fallsæti með sigrinum, en þetta er annar sigur liðsins í röð.

Daniel Ginczek gerði þá eina mark Stuttgart í 1-0 sigri á Borussia Mönchengladbach.

Stuttgart 1 - 0 B. M'Gladbach
1-0 Daniel Ginczek ('5)

Werder Bremen 3 - 1 Wolfsburg
1-0 Ludwig Augustinsson ('4)
2-0 Florian Kainz ('40)
2-1 Paul Verhaegh ('49)
3-1 Florian Kainz ('72)
Athugasemdir
banner
banner
banner