Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. febrúar 2018 14:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Rúrik og félagar fjórum stigum frá umspilinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandhausen 0 - 0 Eintracht Braunschweig

Rúrik Gíslason spilaði allan leikinn þegar lið hans Sandhausen mætti Eintracht Braunschweigh í B-deildinni í Þýskalandi í dag.

Þetta var þriðji byrjunarliðsleikur Rúriks fyrir Sandhausen en hann skipti yfir til Sandhausen á dögunum eftir að hafa fengið lítið að spila með Nurnberg sem leikur í sömu deild.

Til að gera langa sögu stutta skoraði Rúrik ekki í dag, rétt eins og allir aðrir leikmenn á vellinum í Sandhausen. Niðurstaðan var fremur bragðdauft markalaust jafntefli.

Sandhausen er í sjöunda sæti deildarinnar eftir þennan leik og er fjórum stigum frá þriðja sætinu, sem veitir þáttökurétt í umspili um sæti í efstu deild Þýskalands.
Athugasemdir
banner
banner
banner