Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. mars 2018 09:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ashley Young: Næstu vikur eru risastórar fyrir okkur
Mynd: Getty Images
Ashley Young lék allan leikinn í vörn Manchester United í 2-1 sigri þeirra á Liverpool í gær.

Young er orðinn spenntur fyrir næstu vikum en meðal þess sem er framundan hjá Manchester United er 16-liða úrslit í Meistaradeildinni þar sem þeir mæta Sevilla á Old Trafford á þriðjudaginn.

Svo tekur við næstu helgi hjá þeim 8-liða úrslit í ensku bikarkeppninni þar sem þeir mæta Brighton á Old Trafford.

„Næstu vikur eru risastórar fyrir okkur, við viljum halda áfram á þessari braut."

„Þetta var frábær leikur til að vinna og við erum mjög ánægðir með niðurstöðuna," sagði Young eftir sigurinn í gær.


Athugasemdir
banner
banner