Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. mars 2018 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Bonucci vongóður um að ná í góð úrslit á Emirates
Mynd: Getty Images
Arsenal gerði sér góða ferð til Mílanó á Ítalíu á fimmtudaginn en þeir mættu þá AC Milan í Evrópdeildinni, gestirnir frá Lundúndum höfðu þar betur, 0-2.

„Það er erfitt að sætta sig við þetta en svona er þetta bara. Það getur allt gerst í fótbolta og nú þurfum við að mæta jákvæðir í næsta leik," sagði Leonardo Bonucci varnarmaður AC Milan en liðin mætast aftur á fimmtudaginn og þá á Emirates leikvanginum í Lundúnum.

„Arsenal byrjaði leikinn af krafti og það hjálpaði okkur ekkert gegn þessum gæða leikmönnum. Við spiluðum ekki eins og lið og þá endar þetta svona eins og í dag."

„Við mættum til leiks of stressaðir og með spennustigið hátt, allir geta gert mistök. Við spiluðum mun betur í seinni hálfleik en það var ekki nóg. Hrós til Arsenal sem spilaði mjög góðan fyrri hálfleik."

„Ef við spilum jafn vel og við gerðum í seinni hálfleiknum í dag þá gætum við átt möguleika á að ná í góð úrslit í London," sagði Bonucci að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner