Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. mars 2018 22:17
Ívan Guðjón Baldursson
Carragher bað fjölskylduna afsökunar
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher baðst afsökunar á hegðun sinni eftir 2-1 tap Liverpool gegn Manchester United á Old Trafford á laugardaginn.

Carragher, sem lék fyrir Liverpool allan ferilinn, lenti í stuðningsmanni Man Utd í umferðinni.

Maðurinn virtist ná til Carragher sem var á endanum tekinn upp á myndband við að hrækja inn í bíl mannsins og framan í dóttur hans sem sat í farþegasætinu.

„Ég er algjörlega í órétti og bað alla fjölskylduna afsökunar í dag," skrifar Carragher á Twitter.

„Þetta kom fyrir 3/4 sinnum á veginum meðan það var verið að taka upp og ég missti mig."




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner