Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. mars 2018 16:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Slakt gengi Derby heldur áfram
Gary Rowett stýrir Derby.
Gary Rowett stýrir Derby.
Mynd: Getty Images
Nott. Forest 0 - 0 Derby County
Rautt spjald: Tom Huddlestone, Derby ('81)

Það var einn leikur í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands, í dag og var hann tíðindalítill.

Nottingham Forest og Derby County mættust en til að gera langa sögu stutta endaði leikurinn með markalausu jafntefli.

Baráttan um umspilssæti er mjög hörð en Derby er í þeirri baráttu. Liðið er með 62 stig í fimmta sæti en staða liðsins var betri fyrir mánuði síðan. Liðið hefur ekki unnið fótboltaleik í meira en mánuð á meðan liðin í kring hafa verið að vinna sína leiki. Derby þarf að fara að vinna leiki ef liðið ætlar ekki að detta úr umspilinu.

Nottingham Forest er í 15. sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner