Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. mars 2018 14:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frakkland: Það gengur erfiðlega hjá Fanndísi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marseille 0 - 2 Lille
0-1 Rachel Saidi ('37)
0-2 Maud Coutereels ('53)

Fanndís Friðriksdóttir lék allan leikinn með Marseille er liðið tapaði 2-0 á heimavelli gegn Lille í frönsku úrvalsdeildinni.

Fanndís hefur verið að glíma við meiðsli og missti hún af tveimur fyrstu leikjum Algarve-mótsins með Íslandi. Hún spilaði þó seinni tvo leikina þar sem Ísland endaði í níunda sæti.

Hún var klár í slaginn í dag en gat þó ekki hjálpað liði sínu mikið er það tapaði 2-0 á heimavelli fyrir Lille. Marseille hefði getað komist upp úr botnsætinu með sigri en það ekki ekki eftir.

Marseille situr áfram sem fastast á botninum, það gengur erfiðlega að safna stigum í pokann.



Athugasemdir
banner