Eygló Þorsteinsdóttir gerði eina mark leiksins er Valur hafði betur gegn Stjörnunni í Lengjubikarnum.
Eygló gerði markið þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma, rétt rúmri mínútu eftir að Hallbera Guðný Gísladóttir fékk beint rautt spjald.
Eygló gerði markið þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma, rétt rúmri mínútu eftir að Hallbera Guðný Gísladóttir fékk beint rautt spjald.
Hallbera fór þá með takkana í andlit Stjörnustelpu en það var óviljaverk, þar sem leikmaður Stjörnunnar fór með hausinn neðarlega til að skalla knöttinn.
Meira var ekki skorað og er Valur ekki búið að fá mark á sig og með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.
Adrienne Jordan skoraði þá tvö fyrir ÍBV í góðum sigri gegn FH.
Valur 1 - 0 Stjarnan
1-0 Eygló Þorsteinsdóttir ('76)
Rautt spjald: Hallbera Guðný Gísladóttir, Valur ('75)
FH 1 - 3 ÍBV
0-1 Adrienne Jordan ('5)
0-2 Adrienne Jordan ('41)
0-3 Clara Sigurðardóttir ('81)
1-3 Marjani Hing-Glover ('86)
Athugasemdir