Varnarmenn Liverpool áttu í bölvuðu basli með Romelu Lukaku, sóknarmann Manchester United, í leik liðanna á Old Trafford í gær, sem Man Utd vann 2-1.
Bæði mörk United í leiknum komu eftir að Lukaku vann skallaeinvígi við Dejan Lovren, varnarmann Liverpool.
„Marcus Rashford mun fá fyrirsagnirnar en Romelu Lukaku átti þátt í báðum mörkunum," sagði Graeme Souness, sérfræðingur Sky Sports, eftir leikinn í gær.

„Hann er sterkasti einstaklingurinn á vellinum - miðverðir hafa ekki gaman af því að spila gegn honum. Ég held að Lovren muni fá martraðir um hann."
Sjá einnig:
Lukaku aldrei verið með fleiri stoðsendingar
Athugasemdir