Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. mars 2018 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Carragher hrækti framan í táningsstelpu
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher var ekki sáttur eftir 2-1 tap Liverpool gegn Manchester United í enska boltanum á laugardaginn.

Carragher fór yfir leikinn í sjónvarpsveri Sky og lenti á nokkuð pirrandi stuðningsmanni Man Utd í umferðinni.

Maðurinn skrúfaði niður rúðuna sína og kallaði til Carragher. Carragher keyrði í burtu en maðurinn hélt áfram að elta hann og atast í honum útaf tapinu.

Eftir nokkur skipti var nóg komið og var reiðin augljós í andliti Carragher. Hann skrúfaði niður rúðuna sína og hrækti beint inn í bíl til mannsins.

Maðurinn tók allt upp á myndband, en 14 ára gömul dóttir mannsins sat í farþegasætinu og fékk væna gusu yfir sig, eins og er hægt að sjá á myndbandinu hér fyrir neðan. Einnig er hægt að sjá myndbandið með því að smella hér.


Athugasemdir
banner
banner
banner