Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. mars 2018 11:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ramos kúkaði á sig í miðjum leik
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, varnarmaður og fyrirliði Real Madrid, lenti í kröppum dansi í gær.

Real heimsótti Eibar í spænsku úrvalsdeildinni og hafði betur með tveimur mörkum frá Cristiano Ronaldo.

Þegar staðan var 1-1 í leiknum hvar Ramos í skamman tíma, hann hljóp út af vellinum og sneri aftur nokkrum mínútum síðar. Margir veltu því fyrir sér hvað hefði orðið um Ramos en Zinedine Zidane, stjóri Madrídinga, útskýrði það eftir leik.

„Ramos kúkaði smávegis á sig, hann skrapp aðeins á salernið" sagði Zidane.

Ramos birti mynd á Instagram í gær þar sem hann virtist staðfesta þetta. Hann sagði að náttúran hefði kallað.




Athugasemdir
banner
banner
banner