Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. mars 2018 22:25
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Villarreal endurheimti evrópusætið
Mynd: Getty Images
Villarreal endurheimti evrópudeildarsæti af Girona þegar liðið hafði betur gegn fallbaráttuliði Las Palmas fyrr í kvöld.

Leikurinn var jafn en gæði gestanna voru meiri og skoraði kólumbíski framherjinn Carlos Bacca fyrsta mark leiksins í síðari hálfleik.

Heimamenn komust nálægt því að jafna en Nicola Sansone innsiglaði sigur gestanna með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Raul Garcia gerði þá bæði mörk Athletic Bilbao í sigri á Leganes. Bæði lið sigla lygnan sjó um miðja deild.

Las Palmas 0 - 2 Villarreal
0-1 Carlos Bacca ('67)
0-2 Nicola Sansone ('92, víti)
Rautt spjald: A. Galvez, Las Palmas ('91)

Athletic Bilbao 2 - 0 Leganes
1-0 Raul Garcia ('10)
2-0 Raul Garcia ('17)
Athugasemdir
banner
banner
banner