„Það er ánægjulegt að halda í hefðina og skora á móti Leikni," sagði Garðar Gunnlaugsson eftir að hafa tryggt ÍA 1-0 sigur gegn Leikni á útivelli í kvöld.
Garðar skoraði þrjú mörk gegn Leikni í fyrra.
Garðar skoraði þrjú mörk gegn Leikni í fyrra.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 0 - 1 ÍA
„Þetta var iðnaðarsigur. Við vissum að þetta yrði barátta. Mér fannst við vera sterkari allan leikinn, héldum áfram og uppskárum. Það var mikilvægt að ná fyrsta sigrinum."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir