Strákarnir okkar eru þessa dagana að undirbúa sig sem best fyrir Heimsmeistaramótið í Rússlandi en fyrsti leikur strákanna er á laugardaginn næstkomandi gegn Argentínu.
Önnur æfing landsliðsins í Gelendzhik í Rússlandi fór fram í morgun.
Önnur æfing landsliðsins í Gelendzhik í Rússlandi fór fram í morgun.
Leikmenn landsliðsins gera það sem þeir geta til að vera í besta standinu þegar flautað verður til leiks.
Þeir eru því duglegir að fara í ísbað á milli æfinga, eins og landsliðsfyrirliðinn, Aron Einar Gunnarsson og Jóhann Berg Guðmundsson gerðu eftir æfinguna í morgun.
Aron Einar er í kapphlaupi við tímann að ná sér eftir aðgerð og verða 100% klár fyrir laugardaginn.
Á Instagram reikningi fyrirliðans má sjá þá félaga í ísbaðinu í morgun.
Hægt er að sjá myndina hér að neðan.
Athugasemdir