„Það er fínt þegar hitinn er svona mikill að fá kælingu inn á milli," segir Sverrir Ingi Ingason, varnarmaður íslenska landsliðsins, en það gustar í Gelendzhik í dag.
Sverrir ræddi við fjölmiðlamenn fyrir æfingu í dag og sagði meðal annars frá því hvernig fyrstu sólarhringarnir hafa verið hjá liðinu og undirbúningurinn fyrir leikinn gegn Argentínu.
Það var opin æfing hjá Íslandi í gær og vel mætt frá fólki á svæðinu.
„Það var mjög gaman að fá allt þetta fólk og maður finnur fyrir miklum áhuga," segir Sverrir.
„Leikurinn gegn Argentínu verður gríðarlega erfiður en við höfum sýnt það áður að við getum náð í úrslit gegn sterkum þjóðum. Við munum reyna allt til að ná í úrslit á laugardaginn."
„Fyrir einhverjum árum var þetta óraunverulegt en það er raunveruleikinn að við séum að fara að mæta Argentínu á laugardag. Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu, segir Sverrir en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir