Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. júlí 2015 13:10
Stefán Haukur
Man Utd staðfestir samkomulag við Bayern um Schweinsteiger
Bastian Schweinsteiger er á leiðinni til Man Utd.
Bastian Schweinsteiger er á leiðinni til Man Utd.
Mynd: Getty Images
Manchester United og Bayern Munchen hafa komist að samkomulagi um kaup á Bastian Schweinsteiger.

Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, tilkynnti rétt í þessu að samkomulagi hefði verið náð um kaupverðið á leikmanninum en þetta staðfesti Manchester United einnig á heimasíðu sinni.

Schweinsteiger á aðeins eitt ár eftir af samning sínum við Bayern og er kaupverðið talið vera um 12 miljónir punda.

Schweinsteiger hefur verið sterklega orðaður við Manchester United undanfarna daga og mun hann skrifa undir þriggja ára samning við félagið standist hann læknisskoðun.

Schweinsteiger hefur unnið áður með Louis van Gaal en hann var hjá Bayern þegar van Gaal þjálfaði liðið.


Athugasemdir
banner
banner