Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 11. ágúst 2017 10:17
Brynjar Ingi Erluson
Coutinho ekki með Liverpool á morgun
Philippe Coutinho verður ekki með Liverpool á morgun
Philippe Coutinho verður ekki með Liverpool á morgun
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool á Englandi, verður ekki með liðinu í fyrsta leik ensku úrvaldeildarinnar á morgun gegn Watford en þetta staðfesti Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri félagsins á blaðamannafundi í dag.

Coutinho hefur mikið verið í umræðunni síðustu daga en það hefur verið hávær orðrómur um að hann gæti farið til Barcelona í þessum glugga.

Barcelona hefur þegar lagt fram tilboð í hann sem Liverpool hafnaði og nú fyrir skömmu þá sendi enska félagið frá sér yfirlýsingu þess efnis að Coutinho myndi ekki fara neitt.

Klopp var mættur á blaðamannafund í dag en þar var leikur liðsins gegn Watford ræddur. Liðið á leik á morgun og verður Coutinho ekki með vegna bakmeiðsla.

Hann gæti einnig misst af fyrri leik liðsins gegn Hoffenheim í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner
banner