fös 11. ágúst 2017 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Jose Mourinho - í nærmynd
Mynd: Aðsend
Út er komin bókin Jose Mourinho - Í nærmynd

Jose Mourinho er einn af mest heillandi en umdeildustu einstaklingum í knattspyrnuheiminum í dag.

Nafn hans birtist oft í fyrirsögnum fjölmiðla, það eru átökin í kringum hann auk þess einstæða árangurs sem hann hefur náð sem gera hann að mjög heillandi persónu.

Verðlaunablaðamaðurinn Robert Beasley var eini utanaðkomandi maðurinn sem fékk aðgang að einkamálum hins sérstaka, og er einn fárra sem þekkir hinn sanna Mourinho. Hann hefur greint störf knattspyrnustjórans.

Beasley sýnir okkur veröldina frá sjónarhorni José og segir ósagðar frásagnir um það hve nærri því José var að verða landsliðsþjálfari Englands, sannleikann um tengsl hans við Roman Abramovich og hvað honum finnst raunverulega um Arséne Wenger knattspyrnustjóra Arsenal.

Hér er sýnd hlið á José Mourinho sem enginn vissi að væri til.
Athugasemdir
banner
banner
banner