fös 11. ágúst 2017 09:47
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Jón Jónsson þeirra Hoffenheim-manna
Corey Anton í leik með unglingalandsliði Þýskalands
Corey Anton í leik með unglingalandsliði Þýskalands
Mynd: Getty Images
Þýska úrvalsdeildarfélagið Hoffenheim hefur undirbúið sig ágætlega vel fyrir komandi leiktíð en liðið hefur tekið inn nokkra unga leikmenn og einn þeirra heillaði alla leikmenn liðsins upp úr skónum, þó ekki bara fyrir hæfileika sína á vellinum.

Corey Anton er fæddur árið 1999 og kom frá Kaiserslautern á frjálsri sölu en hann hefur verið með aðalliði Hoffenheim á þessu undirbúningstímabili.

Það er vaninn í mörgum löndum að nýliðar taki upp á því að syngja fyrir hópinn og var Anton lítið hræddur við það. Hann tók lagið „All of Me" með John Legend.

Gott ef hann gerði það ekki betur en sjálfur höfundurinn. Jón Jónsson þeirra Hoffenheim-manna, það er á hreinu. Anton gæti vel átt framtíðina fyrir sér í tónlist. Hlustið vel!


Athugasemdir
banner
banner
banner