Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 11. september 2017 10:10
Elvar Geir Magnússon
Búið að reka Frank de Boer frá Palace (Staðfest)
Frank de Boer er orðinn atvinnulaus.
Frank de Boer er orðinn atvinnulaus.
Mynd: Getty Images
Hollendingurinn Frank de Boer hefur verið rekinn sem knattspyrnustjóri Crystal Palace en Mirror greinir frá þessu,

De Boer tapaði fyrstu fjórum úrvalsdeildarleikjum sínum án þess að skora mark. De Boer fékk að kenna á stígvélinu eftir aðeins 77 daga í starfi.

Hálmstráið var 1-0 tap gegn Burnley um helgina en áður hafði liðið tapað 3-0 gegn Huddersfield og beðið lægri hlut gegn Liverpool og Swansea.

Sjá einnig:
Crystal Palace jafnaði met frá árinu 1924

Þetta er annað starfið í röð sem De Boer endist stutt í. Hann tók við Inter sumarið 2016 en var látinn taka pokann sinn í nóvember. Áður hafði hann fimm sinnum gert Ajax að Hollandsmeisturum.

Roy Hodgson er talinn líklegastur til að taka við Palace en síðasti leikur sem stýrði var tap Englands gegn Íslandi í Hreiðrinu í Nice í fyrra.

Sjá einnig:
Hodgson og Stóri Sam orðaðir við Palace

Uppfært: Crystal Palace hefur staðfest þessar fréttir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
11 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
12 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner
banner