„Mig langar bara að fara heim að gráta. Ég held að það sé best að lýsa því þannig, hvernig manni líður núna," sagði Böðvar Böðvarsson, leikmaður U21 árs landsliðs Íslands eftir 4-2 tap liðsins gegn Úkraínu í dag.
Sigur hefði fleytt strákunum okkar í lokamótið.
Sigur hefði fleytt strákunum okkar í lokamótið.
Lestu um leikinn: Ísland U21 2 - 4 Úkraína
„Við mætum ekki til leiks í seinni hálfleik fyrr en við fáum markið á okkur. Þá finnst mér við aftur ná upp sama kafla og í fyrri hálfleik og förum að spila eins og lið aftur."
Liðið var 1-0 yfir í hálfleik og hefðu hæglega getað verið með meira forskot í hálfleik.
„Það voru nokkrar snertingar að klikka þegar við vorum komnir á síðasta þriðjung vallarins, þetta féll ekki fyrir okkur í dag," sagði Böðvar sem segir spennustigið fyrir leik hafa verið nokkuð gott.
„Mér fannst menn vera frekar rólegir yfir þessu fyrir leik og menn vissu alveg hvað þurfti að gera. Úkraína er síðan með gott lið, það er ekki hægt að neita því en við hefðum átt að gera, miklu miklu betur," sagði Böddi löpp.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir