„Ég er ógeðslega spenntur, ég hlakka til að spila og ég vona að veðrið haldi," sagði Rúnar Alex Rúnarsson, markmaður U-21 árs landsliðsins um verkefni dagsins en liðið leikur gegn Úkraínu í undankeppni EM í dag.
Með sigri, tryggir Ísland sér þáttökurétt á EM í Póllandi sem fram fer á næsta ári. Rúnar er bjartsýnn fyrir leikinn og bendir á að leikurinn skiptir litlu máli fyrir úkraínska liðið.
Með sigri, tryggir Ísland sér þáttökurétt á EM í Póllandi sem fram fer á næsta ári. Rúnar er bjartsýnn fyrir leikinn og bendir á að leikurinn skiptir litlu máli fyrir úkraínska liðið.
„Aðal málið er það að við erum að spila leik upp á líf og dauða á meðan þeir eru að spila æfingaleik."
Hann spilaði ekki útileikinn, sem Ísland vann, 1-0 en liðsfélagar hans segja það hafa verið ansi erfiðan leik.
„Ég spilaði ekki þann leik en ég hef heyrt í strákunum að þetta er einn erfiðasti leikur sem þeir hafa spilað á ferlinum,"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir